Skip to main content

Klínísk Sálgæsla


Um mig

Ragnheiður Katla Laufdal Ólafsdóttir, sálgætir, hefur víðtæka menntun og reynslu á sviði sálgæslu og ráðgjafar. Hún hefur bæði guðfræði (M.A Pastoral Ministry) og sálfræðimenntun (M.A Clinical Mental Health Counseling) og fullgild réttindi í klínískri sálgæslu (CPE). Hún starfaði sem prestur Boðunarkirkjunnar frá 2006-2011, hefur sinnt einstaklings, fjölskyldu og hjónabandsráðgjöf á einkastofu auk þess að starfa sem sjúkrahúsprestur hjá AdventHealth, Tampa og Ocala, Florida 2020-2023 og sem sjúkrahúsprestur hjá Landspítalanum Hringbraut. Ragnheiður hefur einnig starfað með börnum og fullorðnum á sviði einhverfu og þroskaskerðingar. 


Klínísk sálgæsla er stafræn þjónusta sem Ragnheiður býður upp á í gegnum myndsímtöl á netinu. Þjónustan hentar öllum hvar sem er á landsbyggðinni.

Þjónustan

Hvað er klínísk sálgæsla? 

  • Að sitja með öðrum í þeirra þjáningu eða tilvistarkreppu. 
  • Að opna fyrir helga stund til að tala um það sem hvílir í hjartanu. 
  • Að opna fyrir samtal með hlustun og blíðri nærveru. 
  • Að bjóða upp á andlegar aðferðir til að glíma við streitu, kvíða, þegar við á og einkenni sýna sig hjá skjólstæðingum.
  • Að tengja viðkomandi við Guð eða hjálpa öðrum að finna farveg fyrir eigin lífsskoðanir og gildi.
  • Að viðhafa fræðslu og helgihald, kyrrðar og bænarstundir, veita sálræna skyndi/áfallahjálp, veita ýmiss jákvæð inngrip inn í mál er varða einstaklinga, skjólstæðinga, fjölskyldur, hópa, stofnanir og fyrirtæki.


Klínísk sálgæsla snýst um að veita skjóstæðingum virka hlustun og að geta létt á hjarta sínu við fagaðila. Ekki er um meðferðarúrræði að ræða heldur samtal þar sem veitt er samúð og hlustun. Hlutverk sálgætis felst í því að vinna með andlegar, trúarlegar, tilfinningalegar og menningarlegar stoðir sem og persónuleg gildi tengdum heilsufari og andlegri líðan skjólstæðinga.

Hafðu samband

Fyrir almennar fyrirspurnir eða spurningar hafið samband með tölvupósti eða í síma. Fyrir tímabókanir ýtið á hnappinn 'Bóka tíma'.


© Klínísk Sálgæsla